Stjórn, ráð og nefndir
Stjórnun og stefna
Háskólinn í Reykjavík er hlutafélag og eru hluthafar og eignarhluti þeirra eftirfarandi:
- Menntasjóður Viðskiptaráðs Íslands 61%
- Samtök iðnaðarins 23%
- Samtök atvinnulífsins 11%
- Eigin hlutir 5%
Eigendur hafa ekki fjárhagslegan ávinning af rekstri HR og ekki er heimilt að greiða arð til hluthafa. HR er því rekinn eins og um sjálfseignarstofnun sé að ræða og ávinningurinn nýttur til að efla menntun í landinu, einkum á sviði tækni, viðskipta og laga.
Háskólaráð og stjórn
Í háskólaráði HR sitja tíu fulltrúar atvinnulífs og stjórnsýslu. Háskólaráð er vettvangur umræðna um stefnumótun háskólans um nám, kennslu og rannsóknir, sem og um tengsl háskólans og atvinnulífsins.
Háskólaráð:
- Tanya Zharov, aðstoðarforstjóri Alvotech og formaður stjórnar HR
- Andri Þór Guðmundsson, formaður Viðskiptaráðs
- Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
- Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofu
- Brynja Baldursdóttir, forstjóri Motus
- Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi Kerecis
- Hjálmar Gíslason, stofnandi og forstjóri GRID
- Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka atvinnulífsins
- Valgerður Hrund Skúladóttir, stofnandi Sensa
- Þorsteinn Víglundsson, formaður Samtaka iðnaðarins
Stjórn HR
Stjórn HR er skipuð fimm aðalmönnum og einum til vara, kjörnum á aðalfundi.
Stjórnin ræður rektor HR. Rektor situr stjórnarfundi. Stjórnin sinnir almennum stjórnarstörfum eins og á við um stjórnir fyrirtækja og ber ábyrgð á stefnumótun, stjórnskipulagi, fjármálum, þar með ákvörðun skólagjalda, og almennum rekstri.
Stjórn Háskólans í Reykjavík skipa:
- Tanya Zharov, aðstoðarforstjóri Alvotech og formaður stjórnar
- Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs
- Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima
- Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins
- Svafa Grönfeldt, prófessor hjá MIT
Framkvæmdaráð
Dr. Ragnhildur Helgadóttir
Rektor Háskólans í Reykjavík
Dr. Bryndís Björk Ásgeirsóttir
Sviðsforseti samfélagssviðs
Dr. Ólafur Eysteinn Sigurjónsson
Sviðsforseti tæknisviðs
Dr. Hafrún Kristjánsdóttir
Deildarforseti íþróttafræðideildar
Dr. Henning Arnór Úlfarsson
Deildarforseti tölvunarfræðideildar
Ásgeir Ásgeirsson
Deildarforseti tæknifræðideildar
Dr. Gunnar Þór Pétursson
Deildarforseti lagadeildar
Dr. Stefan Wendt
Deildarforseti viðskipta- og hagfræðideildar
Dr. Ármann Gylfason
Deildarforseti verkfræðideildar
Dr. Kamilla Rún Jóhannsdóttir
Deildarforseti sálfræðideildar
Ester Gústavsdóttir
Mannauðsstjóri
Jón Haukur Arnarson
Framkvæmdarstjóri rekstrar
Hanna Steinunn Steingrímsdóttir
Formaður námsráðs
Sigurður Ingi Erlingsson
Formaður rannsóknarráðs
Formaður SFHR situr einnig fundi framkvæmdaráðs
Nefndir
Fylgir eftir stefnu háskólans um sjálfbærni þannig að til nefndarinnar megi sækja upplýsingar um stöðu og áhrif kennslu, rannsókna og rekstrar á sjálfbærni með hliðsjón af viðmiðum UFS (umhverfi, félagslegir þættir, stjórnarhættir).
Sér til þess að upplýsingar um sjálfbærni séu aðgengilegar og leiðbeinandi við daglega ákvarðanatöku í rekstri og í kjarnastarfsemi skólans.
Minnir á að Háskólinn í Reykjavík hefur alltaf áhrif á sjálfbærni í gegnum kennslu, rannsóknir, viðburði, atvinnulíf og samfélag.
Samfélagssvið
- Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, sviðsforseti samfélagssviðs, formaður
- Susanne Durst, viðskipta- og hagfræðideild
- Birna Valborgar Baldursdóttir, sálfræðideild
- Ásrún Matthíasdóttir, íþróttafræðideild
- Snjólaug Árnadóttir, lagadeild
Tæknisvið
- Ólafur Eysteinn Sigurjónsson, sviðsforseti tæknisviðs
- Björn Þór Jónsson, tölvunarfræðideild
- Ólafur Haralds Wallevik, tæknifræðideild
- Þórður Helgason, verkfræðideild
Stoðsvið
- Hrafntinna Viktoría Karlsdóttir, ritari nefndar, verkefnastjóri á skrifstofu rektors
- Ásthildur Gunnarsdóttir, forstöðumaður samskipta og markaðsmála
- Jón Haukur Arnarsson, framkvæmdastjóri rekstrar
- María Ingibjörg Jónsdóttir, fjármálastjóri
- Kristján Kristjánsson, rannsóknarþjónusta
- Kristinn Hjálmarsson, Opni háskólinn
Nemendur
- Bjarki Dan Andrésson
- Oddur Óli Helgason
Hér má skoða frekari upplýsingar um hvað HR er að gera í sjálfbærni.
Ráð
Námsráð HR fjallar um málefni er tengjast kennslu og námi á grunn- og meistarastigi. Í ráðinu sitja fulltrúar allra deilda og gæðastjóri HR, ásamt fulltrúa frá kennslusviði og háskólagrunni. Formaður ráðsins er skipaður af rektor til tveggja ára í senn. Ráðið heyrir beint undir rektor og kennslusvið skipar ritara þess. Fulltrúi nemenda, skipaður af Stúdentafélagi HR, situr fundi námsráðs með málfrelsi og tillögurétt. Heimilt er að fulltrúi nemanda víki af fundi óski námsráð þess.
Námsráð mótar Kennslustefnu HR og fylgist með framþróun hennar. Í því felst meðal annars að hvetja til og styðja góða og framsækna kennsluhætti. Námsráð rýnir jafnframt og endurskoðar eftir þörfum reglur háskólans um nám og kennslu.
Námsráð skipuleggur viðburði þar sem akademískt starfsfólk háskólans fjalla um afmörkuð málefni tengd námi og kennslu.
Námsráð fundar síðasta þriðjudag hvers mánaðar (vorönn 2025). Æskilegt er að erindi berist nefndinni viku fyrir fundi.
Námsráð HR:
- Hanna Steinunn Steingrímsdóttir, formaður, sálfræðideild
- Berglind Sveinbjörnsdóttir, sálfræðideild
- Guðrún Ragna Hreinsdóttir, gæðastjóri
- Hallur Þór Sigurðarson, viðskipta- og hagfræðideild
- Haraldur Auðunsson, verkfræðideild
- Heimir Örn Herbertsson, lagadeild
- Hrefna Pálsdóttir, kennsluþróun
- Katrín Ýr Friðgeirsdóttir, íþróttafræðideild
- Kristinn Torfason, Háskólagrunnur
- Sæmundur E Þorsteinsson, tæknifræðideild
- Stefán Ólafsson, tölvunarfræðideild