Mat á rannsóknum
Háskólinn í Reykjavík er virkur þátttakandi í alþjóða rannsóknarsamfélaginu. Matsnefnd skipuð erlendum sérfræðingum gerir úttekt á rannsóknum allra akademískra starfsmanna annað hvert ár. Að auki er rannsóknarstarf skólans metið af Gæðaráði íslenskra háskóla fimmta hvert ár.
Erlenda matsnefndin er sérstaklega beðin um að hafa í huga, að við allan alþjóðlegan samanburð á rannsóknarvirkni innan einstakra vísindasviða/-greina og áhrifum (e. impact) skal taka mið af;
- Birtingum
- Tilvitnunum
- Rannsóknarvinnu
- Leiðbeiningu doktorsnema/nýdoktora
- Öflun rannsóknarstyrkja
- Setu í ritstjórnum
- Ritrýni
- Þátttöku í alþjóðlegum verkefnum
- Skipulagningu vísindaráðstefna
- Mati á doktorsritgerðum, o.fl.
Stigakerfi
Erlenda matsnefndin raðar akademískum starfsmönnum í eftirfarandi fimm flokka, þ.e. gefur rannsóknarstig á kvarðanum 0-4:
- 0. Engin eða lítil sem engin rannsóknarvirkni (e. None or insignificant research activity).
- 1. Lítil en ekki ómarkverð rannsóknarvirkni (e. Little but nontrivial research activity).
- 2. Framlag til alþjóðlega rannsóknarsamfélagsins eða ef viðeigandi til íslenska rannsóknarsamfélagsins (e. Contributes to the international research community or domestic where appropriate).
- 3. All nokkur og virk þátttaka í alþjóðlega rannsóknarsamfélaginu eða ef viðeigandi í íslenska rannsóknarsamfélaginu, með greinilegu framlagi og áhrifum (e. Considerable and active participant in the international research community or domestic where appropriate, with a clear contribution and impact).
- 4. Veruleg og virk þátttaka í alþjóðlega rannsóknarsamfélaginu eða ef viðeigandi í íslenska rannsóknarsamfélaginu, með talsverðu framlagi og áhrifum (e. Significant and active participant in the international research community or domestic where appropriate, with a substantial contribution and impact).